156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[10:19]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þetta er dimmur dagur. Þetta er dimmur dagur í sögu Alþingis Íslendinga. Þetta er dimmur dagur í sögu þjóðarinnar. Kjarnorkuákvæðinu er beitt til að koma í gegn skattahækkunarmáli. Ríkisstjórnin vinnur eftir því slagorði: Ég á þetta, ég má þetta. Það er engin virðing borin fyrir reglum, venjum og hefðum Alþingis Íslendinga og vanhæfni þessarar ríkisstjórnar er fullkomlega afhjúpuð á þessum degi þegar hún ætlar að keyra í gegn þessa vondu ákvörðun sem mun hafa afleiðingar sem enginn sér fyrir. En eitt vitum við: Þær verða ekki góðar og það er á ábyrgð hæstv. vanhæfrar ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.