takmörkun umræðu.
Virðulegi forseti. Ég virði ákvörðun forseta og mun styðja tillögu forseta um að 2. umræðu í þessu máli verði lokið og þinglegri meðferð þessa máls verði fram haldið. Hér hafa komið fram ýmis sjónarmið. Hér hafa komið fram breytingartillögur minni hluta og mikilvægt er að málið fái áfram sína þinglegu meðferð, að greidd verði atkvæði um málið, nefndin fái að fjalla um málið og við að lokum, eins og lýðræðið í landinu gerir ráð fyrir, greiðum atkvæði um málið í heild sinni.
Forseti hefur stigið mikilvægt skref, hefur virkjað lýðræðisákvæði þingskapa sem stendur vörð um það að hér er ekki neitunarvald minni hlutans heldur einmitt lýðræði í landinu.