takmörkun umræðu.
Virðulegur forseti. Þetta er sorgardagur fyrir Alþingi Íslendinga. Þetta er sorgardagur fyrir lýðræðið í landinu. Hér er verið að nota kjarnorkuákvæðið í fyrsta sinn í 66 ár á skattahækkunarmál sem á að taka gildi eftir hálft ár þar sem 26 sveitarfélög, samfélög fólks, hafa sent inn alvarleg varnaðarorð um afleiðingar þessa frumvarps. Þetta er sorgardagur og segir okkur einna helst að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur — og hæstv. forsætisráðherra er fyrsti forsætisráðherrann í 66 ár sem getur ekki samið hér um þinglok.