156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[10:24]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þessi tillaga, eins og hún var rökstudd hér áðan, er auðvitað sprottin upp úr ákveðinni nauðsyn og það er mikilvægt fyrir okkur að hafa ákveðna forsögu í huga. Eitt lítið skattahækkunarmál, segir stjórnarandstaðan. Þetta svokallaða litla skattahækkunarmál hefur verið rætt hér í meira en 160 klukkutíma. Hér hafa menn farið í þúsundir ræðna. Hér eru þingmenn á mælendaskrá sem eru að fara í sína 58. og 64. ræðu. Samt tala menn um að þetta sé bara lítið mál sem ekki kalli á að þingsköp Alþingis sem ganga út á að lýðræðið eigi að virka komi til framkvæmda. Menn hafa meira að segja haft þau orð hér um að það sé kvöð að halda umræðunni áfram.

Við verðum að hafa það í huga að það er ekki þannig að stjórnarandstaðan eigi að hafa neitunarvald á Alþingi Íslendinga. Hér eru mál afgreidd ef þau eru í ágreiningi, með atkvæðagreiðslu hér í þingsal hjá þingmönnum og það er það sem er í uppsiglingu í þessu máli. Ég virði ákvörðun forseta heils hugar.