takmörkun umræðu.
Hæstv. forseti. Það er athyglisvert að þessu ákvæði skuli beitt nú til að tryggja rétt ríkisstjórnarinnar til að setja illa gerð lög, eins og einn ágætur þingmaður orðaði það um daginn, tryggja þann rétt til framtíðar að ríkisstjórn geti komið með ófullburða mál sem eru í alla staði vond og illa gerð og böðlað þeim í gegn með þessum hætti. Það sem er kannski grátbroslegast, vegna þess að upphaflega var ætlað að þetta mál og tekjur af þessari framkvæmd myndu standa undir innviðauppbyggingu og ég veit ekki hvað og hvað — það átti að teppaleggja landið með vegum fyrir afraksturinn af þessari skattahækkun — er að hún dugar ekki til að dekka tap af sölunni á Íslandsbanka sem var annað gæluverkefni þessarar ríkisstjórnar, jafn illa unnið. Það er allt miður og þetta á ekki eftir að hafa góð áhrif inn í framtíðina.