takmörkun umræðu.
Virðulegur forseti. Já, þessi annars fallegi sumardagur hefur breyst í mjög drungalegan dag hérna um miðjan júlí. Það er verið að beita þessu ákvæði í fyrsta sinn í meira en hálfa öld og það undir forystu hæstv. forsætisráðherra, Kristrúnar Frostadóttur sem hefur ekki tekist að miðla hér málum og er að beita þessu ákvæði, sem er algjörlega fordæmislaust undanfarna áratugi.
Eftir mjög dramatískar yfirlýsingar forystumanna stjórnarliðsins hér í gær þá fannst manni nóg um. Manni fannst virðing Alþingis hafa beðið mikinn hnekki, hvað þá í dag. Hvers konar fordæmi er verið að gefa og hvers konar skilaboð er verið að gefa út í pólitíkina það sem eftir lifir þessa kjörtímabils? Guð var beðinn um að blessa Ísland. En hvað er að verða um Alþingi? Virðing Alþingis hefur beðið alvarlegan hnekki og leiðtogahæfileikar í þessari ríkisstjórn — þetta er mikill áfellisdómur yfir þeim.