takmörkun umræðu.
Virðulegur forseti. Það var ekki góður dagur á þinginu í gær og byrjunin á þessum er enn þá verri. Ég harma þessa ákvörðun og ég harma að Alþingi Íslendinga sé komið á þennan stað sem við erum á í dag. Ég óttast að hér sé sett lína í sandinn sem muni marka komandi þing og þingvetur umfram allt sem við getum ímyndað okkur í dag. Þetta er afar slæmt fordæmi og afar dapurleg niðurstaða. Þetta er gríðarlegt inngrip í þingræðið; að takmarka og stöðva málfrelsi okkar þingmanna. Það er ekki léttvægt, virðulegur forseti, og mér er eiginlega orða vant. Ég átti ekki von á að við myndum enda á þessum stað. Ég ítreka aftur vonbrigði mín með þessa ákvörðun og það úrræðaleysi sem hæstv. ríkisstjórn virðist vera komin í.