takmörkun umræðu.
Frú forseti. Stjórnarandstaðan á ekki að hafa neitunarvald á Alþingi. Þessi ákvörðun forseta er eðlilegt viðbragð við því, eðlilegt viðbragð við fordæmalausar aðstæður. Ég er mjög dapur yfir því að hér hafa stjórnarandstöðuþingmenn komið og líkt þessu ákvæði við kjarnorku og öllum þeim hryllingi sem kjarnorku hefur fylgt í gegnum áratugina og söguna. Við það er ég mjög dapur. En að því sögðu ætla ég ekki að hafa þetta flókið en styð þessa ákvörðun forseta heils hugar og tek undir stuðning forseta við þingræðið, lýðræðið í landinu og mun styðja ákvörðunina.