takmörkun umræðu.
Frú forseti. Þetta er sannarlega sorgardagur í sögu þings og málsmeðferðar hér á Alþingi, 71. gr. þingskapalaga beitt. Hér er greinilega við völd ríkisstjórn sem er með kjörorðið: Ég á þetta, ég má þetta. Ég velti því fyrir mér hvort aldrei hafi staðið til að semja. Hér er þessu ákvæði 71. gr. beitt til þess að hækka skatta stórlega. Ég vil segja þetta við þingheim og við hæstv. forsætisráðherra: Þetta er lágpunktur stjórnmálaferils hæstv. forsætisráðherra, Kristrúnar Frostadóttur, sem skortir þann hæfileika að leiða mál í jörð með samningum. Það er bara ömurlegt til þess að hugsa að það sé verið að beita þessu ákvæði til þess að hækka skatta með stórfelldum hætti.