156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[10:34]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Alla okkar lýðveldissögu hefur verið óskrifuð pólitísk sátt um að beiting 71. gr. sé síðasta úrræðið sem einungis á að nota í ýtrustu neyð. Alla tíð, í öllum þeim erfiðu málum sem þingið hefur þurft að leysa úr, hafa þingmenn sýnt þroska, virðingu og skilning á því að þingið á að vera vettvangur umræðu en ekki þöggunar. Hingað til hefur meiri hlutinn virt þá hefð að leita sátta og samninga í stað þess að beita valdi til að þagga niður í minni hlutanum. Allt þar til ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við. Hún mun nú setja mark sitt á söguna sem fyrsta ríkisstjórn lýðveldisins sem fórnaði þingræðinu fyrir skattahækkun. Kristrún Frostadóttir valdi að beita úrræði sem hingað til hefur einungis verið notað í neyðartilvikum, svo varði þjóðarhag, vegna þeirrar einföldu ástæðu að hæstv. forsætisráðherra var hvorki tilbúin í samtal né til að leita sátta. (Forseti hringir.) Þetta er ekki neyðartilvik. Þetta er ekki mál sem snertir þjóðaröryggi. Það er pólitísk ákvörðun tekin hér um að þagga niður í stjórnarandstöðu með þessum hætti. (Forseti hringir.) Ég er hrædd um að þessi vanhugsaða ákvörðun hafi sett fordæmi sem mun skaða Alþingi Íslendinga til frambúðar. Aldrei hefur nein ríkisstjórn lagst svo lágt fyrir jafn vondan málstað eins og að hækka skatta.

(Forseti (ÞSv): Forseti sér sig knúna til að minna hv. þingmenn á ræðutímann.)