156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[10:37]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Nú er allt breytt. Margar af þeim ræðum sem hafa verið fluttar hér til að verja þessa ákvörðun virðulegs forseta hljóma eins og ræður einstaklings sem er rétt u.þ.b. að verða einræðisherra, rétt áður en hann kippir lýðræðinu úr sambandi. Þetta kristallast í einhvers lags frekjukasti í skattahækkunarmáli. Það að við hér í þinginu og, leyfi ég mér að segja, virðulegur forseti sé settur í þá stöðu að beita þessu ákvæði til að knýja fram skattahækkunarmál, eins illa unnið og það sem hér liggur fyrir, mun verða þeim sem taka þá ákvörðun til ævarandi skammar. Þegar þetta mál, jafn illa unnið og brogað og það er, lendir fyrir dómstólum, sem mun gerast án nokkurs vafa við fyrstu álagningu á grundvelli þess sem hér á að þvinga í gegn, þá verður skömm ykkar sem þetta hafið gert enn meiri og hún verður rifjuð upp. Það megið þið vita, virðulegir þingmenn.