156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[10:39]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég styð enn þá ákvörðun forseta en vil þó koma hér upp til að bregðast við athugasemdum frá minni hlutanum sem vísa til þess að það sé fordæmalaust í stöðunni að beita þessu ákvæði og hér sé ekki búið að semja um þetta mál. Það sem er fordæmalaust er málþóf stjórnarandstöðunnar, lengsta málþóf í sögu Alþingis. Það sem er fordæmalaust er að stjórnarandstaðan leggist öll sem eitt gegn því að réttkjörinn meiri hluti á Alþingi fái framgang mála sinna hér til lýðræðislegrar atkvæðagreiðslu. Það er fordæmalaust. Það sem er fordæmalaust er stjórnarandstaða sem gerir það að kröfu sinni að hér verði ekki samið um þinglok nema stjórnarmeirihlutinn samþykki frumvarp stjórnarandstöðunnar í veiðigjaldamálinu. Þetta er það sem er fordæmalaust. Því tel ég ákvörðun forseta rétta og því styð ég ákvörðun forseta.