takmörkun umræðu.
Virðulegi forseti. Við erum hér að greiða atkvæði um hvort nota eigi kjarnorkuákvæði, já, kjarnorkuákvæði sem svo er kallað í öllum lýðræðisríkjum, er heildarheitið yfir þetta, á lítið skattamál, sagði ég. Já, þetta eru að sögn ríkisstjórnarinnar 7 milljarðar, þetta sé ekki nema 7 milljarða hækkun á eina atvinnugrein í 1.500 milljarða fjárlögum. 7 milljarðar á móti 1.500. Þetta er lítið skattamál. En hvað höfum við verið að fjalla um hér og hvað hefur minni hlutinn farið fram á í þessu máli sem var ekki hægt? Það var samtal um það hvernig væri hægt að mæta áhyggjum þeirra þar sem þessi skattahækkun er mjög stór, fyrir byggðir landsins og atvinnulífið í heild sinni. Það eru þau sem hafa áhyggjur. Það var það sem hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórn hennar voru ekki tilbúin að gera málamiðlun um eins og er alþekkt í allri þingsögunni.