takmörkun umræðu.
Virðulegi forseti. Vegna orða hv. þingmanns og formanns þingflokks Samfylkingarinnar skal það sagt að það að halda því fram að mál séu með þeim hætti eins og hann segir er fullkominn þvættingur. Allar ríkisstjórnir hefðu sett þetta vanbúna mál, sem kom hérna inn með afbrigðum með atkvæðum stjórnarandstöðunnar, vegna þess að það kom of seint fram — það væri löngu búið að taka það til baka og reyna að vinna það almennilega. Það er ekkert nýtt í því. Hvert einasta ár hefur hæstv. ríkisstjórn og hv. stjórnarandstaða samið um hin ýmsu mál þó að það sé algerlega ljóst og allir vita og enginn er mótfallinn því að hæstv. ríkisstjórn muni hækka skatta, ekki bara hér. Það er alveg vitað. En þetta mál er annars eðlis. Það sem er hins vegar stóra málið í þessu er að hér er búið að skapa fordæmi, virðulegi forseti, sem mun valda einhverju sem við sjáum ekki fyrir og það er eitt algjörlega öruggt: Það er ekki gott. Þess vegna er þetta, virðulegi forseti, mjög dimmur dagur í sögu Alþingis Íslendinga.