156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[10:43]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég skil og virði ákvörðun hæstv. forseta þegar gengið er á sjálft lýðræðið og þingræðið er ekki virt. Þá er skiljanlegt og ábyrgt að grípa inn í á grundvelli laga, lagaákvæðis sem er þegar til staðar og það er í lögum af ástæðu. Við erum búin að heyra hér ótvíræðar yfirlýsingar af hálfu stjórnarandstöðunnar um heilaga skyldu þeirra að stoppa þetta mál — stoppa þetta mál. Það er heilög skylda þeirra og hefur ítrekað komið fram. Stjórnarandstaðan nýtur ótvíræðs málfrelsis en með misnotkun á því er verið að snúa þingræðinu á hvolf. Það er það sem forseti er að gæta; að þingræðið virki, lýðræðið virki og ekki síst að almannahagsmunir séu teknir framar sérhagsmunum.