takmörkun umræðu.
Frú forseti. Þessi ríkisstjórn hefur ekki gefið mikið fyrir Alþingi, ekki gefið mikið fyrir hefðir og venjur og jafnvel ekki mikið fyrir lög, a.m.k. ekki þingskapalög því að nú erum við um miðjan júlí búin að vera ræða skattahækkunarmál þessarar ríkisstjórnar sem kom ekki einu sinni fram fyrr en löngu eftir að þingi átti að vera lokið. Engu að síður er ákveðið að brjóta blað í sögu þingsins og steypa samstarfi hér á þinginu í óvissu til langrar framtíðar út af þessu skattamáli. Maður hlýtur að velta fyrir sér, eftir aðdragandann, hvort þetta hafi kannski alltaf staðið til, a.m.k. frá síðustu mánaðamótum, því að engin forysta ríkisstjórnar getur verið eins léleg í samningum og samskiptum og þessi forysta hefur virst vera. Var ætlunin kannski bara alltaf að ögra þinginu þangað til það tækist að brjóta blað í sögunni með þeim dapurlega hætti sem nú er gert?