156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[10:47]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta er með ólíkindum. Nú erum við að sjá að það er verið að gefa hér fordæmi. Ef stjórnarandstaðan ætlar að taka varðstöðu með hinum vinnandi manni og skattahækkunum á hann, vinnandi stéttum þessa lands eða öðrum atvinnugreinum, ferðaþjónustunni eða ef það á að hækka tryggingagjaldið, þá sjáum við hvað vinstri stjórnin ætlar að gera, hvað skattastjórnin ætlar að gera. Ef þetta eru úrræðin á fyrstu sex mánuðum ríkisstjórnarinnar, þegar hún er algjörlega vanhæf að ná hér þinglokum, sínum fyrstu, þá vitum við hvað er í vændum. Og þegar baráttan um fullveldi landsins verður, um inngönguna í Evrópusambandið, þá vitum við hvað er í vændum. Fyrst hæstv. ríkisstjórn notar þetta á sínum fyrstu skrefum, þetta ákvæði í fyrsta skipti í 66 ár, þá vitum við hvað er í vændum og hvað verður í vændum þegar baráttan um fullveldi landsins hefst.