156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[10:48]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa komið hér upp og fullyrt að hér sé verið að nota 71. gr. fyrir skattahækkun og allt að því, ef lesa má úr málflutningi, ómerkilega skattahækkun. Það er kannski svolítið það sem við erum að eiga við hér, stjórnarmeirihlutinn og ríkisstjórnin, að stjórnarandstaðan er tilbúin til að halda hér þinginu í gíslingu, koma í veg fyrir að hér náist þinglokasamningar á nákvæmlega sömu forsendum. Ég hef reynslu úr kjarasamningagerð, hef alltaf náð samningum. Það varð ljóst fyrir nokkrum dögum að stjórnarandstaðan ætlaði ekki að semja. Hún ætlaði ekki að enda þetta þing með þinglokasamningi. Kristrún Frostadóttur, hæstv. forsætisráðherra, hefur staðið sig framúrskarandi vel í viðleitni sinni og þolinmæði í að leiða þetta mál til lykta og fyrir það að hrósa ég hæstv. forsætisráðherra. En ég get ekki hrósað stjórnarandstöðunni. En ég er enn þá staðfastari í minni skoðun að styðja þessa ákvörðun, forseti.