156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[10:50]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Dagarnir versna hérna á Alþingi. Ég ætla ekki að nota þetta augnablik í þingsögunni, þetta vonda augnablik í þingsögunni, til að elta ólar við uppnefni, gífuryrði, lygar, ósannindi, óheiðarleika sem er hér haldið fram um síðustu viku, um meiningar okkar í stjórnarandstöðunni og um samningsvilja okkar sem var mikill. Ég ætla ekki að elta ólar við þetta, til þess er augnablikið einfaldlega of viðamikið, en ég ætla að leyfa mér að segja afleiðingar þessa máls fyrir t.d. sjávarútvegssveitarfélög er eitt og alvarlegt, en afleiðingar þessa máls fyrir þingið og framhald þingsins sem merkilegustu stofnunar í þessu lýðræðisríki okkar munu koma í ljós og þær eru á ábyrgð taugaveiklaðrar ríkisstjórnar.