takmörkun umræðu.
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (um atkvæðagreiðslu):
Frú forseti. Fulltrúar minni hlutans hafa uppi stór orð um lýðræðið í landinu og formaður Sjálfstæðisflokksins sagði að þingræðinu hefði verið fórnað. Þetta eru hennar orð og þessi orð dæma sig auðvitað sjálf. Lýðræðið er dýrmætt en brothætt. Það er staðreynd að minni hlutinn í þessum sal hefur reynt á þanþol þingsins og þar með lýðræðis í landinu undanfarnar vikur og mánuði með fordæmalausu málþófi þar sem gengið er lengra en nokkru sinni fyrr á Alþingi til að hindra að tekið sé sanngjarnt afgjald af auðlindum þjóðarinnar. Það er líka staðreynd að lýðræðið verður að virka. Við skuldum kjósendum það og almenningi í landinu að lýðræðið virki. Það er hættulegt þegar þingið hættir að virka. Það er hættulegt þegar Alþingi hættir að virka. Minni hlutinn hefur mikilvægu hlutverki að gegna en minni hlutinn hefur ekki neitunarvald á Alþingi. Þannig hefur það aldrei verið og það var aldrei hugmyndin í stjórnskipan landsins. Ég virði ákvörðun forseta.