156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[10:53]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Eins og við sjáum kannski betur nú voru yfirgengilegar yfirlýsingar forystumanna ríkisstjórnarinnar í gær og raunar síðustu daga um baráttuna um Ísland, vörnina fyrir lýðveldið og jafnvel það að halda því fram að ef menn töluðu of lengi á þingi væri hinn valkosturinn að leiða menn út undir húsvegg og skjóta þá. Nú setjum við þetta allt í samhengi sem hluta af því mikla leikriti sem ríkisstjórnin hefur haldið uppi allt frá því að hún hóf störf. Þetta er blekkingarstjórn. Þetta er spunastjórn sem hefur ekki tekið þátt í umræðu um þetta mikilvæga mál sitt hér nema með því að kasta fram einhverjum fúkyrðum í fjölmiðlum. Þessi stjórn snýst ekki um annað en frekju, vitleysisgang og yfirgang.