156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[10:59]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég segi nei. Ég segi nei við þessu sorglega leikriti ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur og aukaleikara hennar. Ég segi nei við þessu hræðilega inngripi inn í Alþingi Íslendinga og við málfrelsi þjóðkjörinna fulltrúa.

Virðulegur forseti. Þetta er sorgardagur og það er ótrúlegt að forseti Alþingis hafi boðið okkur upp á þetta leikrit síðustu daga. Ég segi stórt nei.