156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[11:01]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég stend vörð um lýðræðið. Ég stend vörð um hlutverk okkar alþingismanna og um nánast óslitna lýðveldissögu um frið og málamiðlanir hér í þingstörfum og segi því nei. Vonandi berum við gæfu til þess að þessi yfirgangur og þetta friðrof verði ekki endurtekið. En með hæstv. forsætisráðherra í brúnni hef ég þungar áhyggjur.