156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[11:02]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Alþingi Íslendinga er elsta þjóðþing í heimi. Við höfum getað verið stolt af okkar lýðveldissögu en við getum ekki verið stolt í dag. Þetta er dimmur dagur. Það er alvarlegt þegar hér koma hv. þingmenn, sem hafa verið í heila sjö mánuði á þingi, og segja okkur hvernig þetta hefur verið og vita augljóslega ekkert um hvað þeir eru að tala. Það er alvarlegt, þegar maður heyrir tóninn í hv. stjórnarþingmönnum, að svona eigi að halda áfram af því að þeir túlka þetta með þessum hætti. Það liggur alveg fyrir að þessi ríkisstjórn hefur og ætlar að starfa eftir þeim orðum: Ég á þetta, ég má þetta. Það eru hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi. Þessi ákvörðun sem hæstv. ríkisstjórn er að taka í dag mun hafa afleiðingar í för með sér, miklu alvarlegri afleiðingar (Forseti hringir.) heldur en við getum séð fyrir nákvæmlega núna. Ég stend með Alþingi, ég stend með lýðræðinu og ég segi nei.