takmörkun umræðu.
Frú forseti. Þingræði þýðir ekki að meiri hlutinn megi valta yfir minni hlutann. Þegar lög eru í burðarliðnum sem hafa bein áhrif á afkomu heilla byggðarlaga og framtíð atvinnulífs í landinu þá má enginn búast við því að þau fari í gegnum þingið án umræðu. Þetta frumvarp hefur verið gagnrýnt af öllum helstu hagsmunaaðilum, sveitarfélögum og sérfræðingum. Við getum ekki litið fram hjá því og það er ekki sérhagsmunagæsla, sama hversu oft ríkisstjórnin ætlar að tönnlast á því. Það er ekki óeðlilegt að verja störf og framtíð landsbyggðarinnar. Það er skylda okkar sem hér erum inni. Ég segi nei. Ég segi nei við þeirri óvirðingu sem Alþingi er sýnd hér í dag. Alþingi verður aldrei aftur eins og það er í boði Kristrúnar Frostadóttur.