156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[11:05]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Það er ótrúlegt að við séum að fara niður þennan stíg. Ætli fólk geri sér grein fyrir hvað við erum að opna á hér á mögulega? Hversu lengi má tala í málum umfram þá þrjá klukkutíma sem stendur í þingsköpunum í dag, verður það stoppað eftir þrjá tíma? Hvaða næstu mál lenda undir 71. gr.? Stór mál, lítil mál, skattamál, samgöngumál, Evrópusambandsmál. Ábyrgð ykkar er mikil og ófyrirséð hvert hún leiðir. Það er dapurt að verða vitni að þessu. Það er ekkert búið að reyna hér til þrautar, það vita það allir, það vita það allir úti í samfélaginu og þið vitið það öll. Það er ekkert búið að reyna hér til þrautar. Það hefur verið lögð fyrir málamiðlunartillaga, það hefur verið samtal, bara síðast í gær, og hér erum við komin. Ábyrgð okkar er mikil. — Ég segi nei.