156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[11:07]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Mig langaði aðeins að ræða hér vegna umræðu um meintan skort á vilja meiri hlutans til samninga og meintan vilja minni hlutans til samninga. Hæstv. utanríkisráðherra fór ágætlega yfir það hér hvaða málamiðlunum var hafnað af hálfu minni hlutans. En það var reyndar fleira. Og af því að ég held raunverulega að einhverjir þingmenn minni hlutans hér haldi að staðan hafi verið önnur í samningaviðræðunum en hún raunverulega var þá finnst mér ástæða til að upplýsa að minni hlutinn sem virðir þingræðið, ef marka má orð þeirra hér, minni hlutanum þótti við hæfi, samningsmönnum minni hlutans, að leggja fram frumvarp, eigið frumvarp sem þeim þótti eðlilegt að meiri hlutinn hér á þingi brygðist við með því að leggja stjórnarfrumvarpið til hliðar og taka upp frumvarp minni hlutans sem tákn um samningsvilja, frumvarp sem slátraði þeirri breytingu, kerfisbreytingum sem meiri hlutinn ætlar sér að ná í gegn þannig að veiðigjöldin taki mið af markaðsverði, þannig að það verði gegnsæi. Nei, þetta var meira af hinu sama; örfárra prósenta hækkun á nokkrum árum. Þetta er virðing samningsfólks minni hlutans fyrir þingræðinu, svo það sé haft á hreinu.

(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn segir?)

Þingmaðurinn segir já.