takmörkun umræðu.
Frú forseti. Ég kom inn sem varaþingmaður fyrir tveimur dögum síðan og það hefur auðvitað verið dálítið fróðlegt að fylgjast með því háa spennustigi og þeim stóru orðum sem hér hafa fallið síðustu daga. Maður hefur ákveðnar áhyggjur af því hvernig fyrir þessari stofnun er komið. Það hlýtur að vera markmið okkar að gera lagasetningu og öll frumvörp sem best úr garði. Það hlýtur að vera okkar markmið út í samfélagið. Það fæst ekki með því að vaða áfram. Það fæst auðvitað með því að miðla málum, með því að hlusta á sjónarmið og búa löggjöfina sem best úr garði.
Mig langar að benda á að það blasir við að sú málamiðlun hefur ekki tekist. Mig langar að vitna til orða manneskju sem ég er að vísu ekki sammála í pólitík en hafði alltaf mikið álit á, Katrínar Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, sem lýsti því stundum hvernig þetta ferli gengi fyrir sig. Það þyrfti að halda fund, halda annan fund og svo þyrfti að halda miklu fleiri fundi til að ná niðurstöðu. Ég held að þetta væri eitthvað sem hv. ríkisstjórn mætti taka til sín því að maður hefur á tilfinningunni að tíminn fari frekar í að hanga í bakherbergjum, finna uppnefni á pólitíska andstæðinga og veifa fingri framan í þá. Af þessum sökum sitjum við uppi með þessa stöðu. Það er verið að beita ákvæði sem er fordæmalaust og hefur ekki verið beitt áratugum saman. Þetta er ákveðið friðrof í þinginu. Það er auðvitað miður. — Ég segi nei.