156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[11:14]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ágætu félagar. Ég vil nú kannski ekki segja að þetta sé sorgardagur en þetta er erfiður dagur. Þetta er erfiður dagur fyrir okkur öll. Ég get talað út frá mínu hjarta að svo lengi hef ég þráð að ekki þyrfti að koma til þessa heldur að við hefðum getað hér í sátt og samlyndi lokið þessu þingi. En það var fullreynt og það hefði verið vel farið yfir það þannig að það var engin önnur leið eins mikið og ég hefði viljað sjá aðra leið. Og það er líka búið að fara yfir það af hverju það var engin önnur leið. Við erum að tala hér um yfir 160 klukkutíma, yfir 3.000 ræður, samningaviðræður þannig að við erum bara hér stödd núna og nú verðum við að taka þennan slag. Ég þakka guði fyrir að þessi 71. gr. er til í þingskapalögum og hún er til af ástæðu og sú ástæða er hér og nú.

(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn segir?) — Þingmaðurinn segir já.