takmörkun umræðu.
Virðulegi forseti. Þetta er lýðræðisdagur. Hér með þessari ákvörðun virðulegs forseta er verið að taka stjórn á lýðræðinu hér á Alþingi. Við erum búin að hafa þetta mál sem hér um ræðir til umræðu mjög, mjög lengi eins og allir vita. Það er allt sagt sem segja þarf í þessu máli, bæði af hálfu meiri hluta og minni hluta. Og þá er komið að því að lýðræðið virki og það sé hægt að greiða atkvæði um þetta stóra mál, sem er í eðli sínu þannig að við erum ekki sammála um það og að miðla málum þýðir ekki það að falla frá þeim tillögum sem lýðræðislega kjörinn meiri hluti leggur fram í þessu frumvarpi og fallast á tillögu minni hlutans um allt öðruvísi mál. Það er ekki að miðla málum heldur það að horfast ekki í augu við það að við erum hér með lýðræðislegan meiri hluta og við eigum rétt á því að fá að greiða atkvæði um mál.
(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn segir?)— Já.