156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[12:32]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Nú erum við að ganga til atkvæðagreiðslu eftir að meiri hlutinn hefur beitt meirihlutaræði sínu til að taka málfrelsið af þingmönnum minni hlutans eftir að þetta mál er komið hér til þingsins án þess að það hafi nokkurn tímann verið ætlun stjórnarmeirihlutans að hlusta á athugasemdir minni hlutans, athugasemdir atvinnulífsins í landinu, athugasemdir sveitarfélaganna. Allur ferill þessa máls í gegnum Alþingi Íslendinga og þá lýðræðislega ferla sem þar hafa verið í mörghundruð ár var hunsaður af meiri hlutanum. Um þetta erum við að fara að greiða atkvæði eftir alla þessa hunsun. Það er til skammar, virðulegi forseti, að þessi atkvæðagreiðslu sé að fara fram eftir það sem á undan er gengið.