veiðigjald.
Virðulegi forseti. Að þvinga í gegn illa unnið mál með meiri hlutann að vopni er valdbeiting. Ríkisstjórnin ætlast til þess að Alþingi Íslendinga samþykki hér stórmál í skjóli meirihlutaræðis. Alþingi er ekki einkamál ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin hefur hafnað öllum sáttatillögum og neitað að ræða raunverulegar lausnir. Hæstv. forsætisráðherra Kristrún Frostadóttir hefur komið í veg fyrir að náðst geti samningar um þinglok. Ég ítreka: Hún er fyrsti forsætisráðherrann í 66 ár sem getur ekki klárað þinglokasamninga.