veiðigjald.
Frú forseti. Það er ekki lögmál að gjaldtaka fyrir nýtingarrétt á þjóðarauðlind byggi á mjög gegnsæjum útreikningum þar sem þeim sem hafa nýtingarréttinn er falið ákvörðunarvaldið yfir þeirri upphæð sem þeir greiða til þjóðarinnar. Þess vegna erum við hér. Við viljum öflugan sjávarútveg sem greiðir eðlilegt og rétt gjald fyrir að nýta auðlind þjóðarinnar. Þannig náum við vonandi að skapa samstöðu um mikilvæga atvinnugrein sem er einn af hornsteinum samfélagsins okkar, bæði efnahagslega og menningarlega. En rétt skal vera rétt.