156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[12:35]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hvers vegna þetta mikla leikrit? Hvers vegna þessi aðferð sem hér er beitt? Hver er tilgangurinn? Varla er það bara til að afgreiða skattamál í júlí sem tekur gildi næsta vetur. Það hlýtur að vera einhver annar tilgangur á bak við þetta hjá fólki sem hugsar ekki um annað en næsta spunaleik. Kann að vera að hæstv. forsætisráðherra hafi komið upp um næsta skref í viðtali við Ríkisútvarpið þegar hann sagði að nú þyrfti að klára atkvæðagreiðslu um veiðigjöld og rjúfa svo þing? Er ætlun hæstv. forsætisráðherra, verandi búinn að telja sjálfum sér trú um að þetta sé stórkostlega vinsælt allt hjá þeim og sniðugt, að rjúfa þing og stefna á að losna við aukahjólið, Flokk fólksins, úr ríkisstjórninni? Telur hæstv. forsætisráðherra að þetta sé það sniðugt að það sé ástæða til að klára þetta og rjúfa svo þing?