156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[12:41]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Nú er búið að neyða þingheim til að greiða atkvæði um mál. Hér er búið að nota kjarnorkuákvæði í þingskapalögum til að neyða þingið til að greiða atkvæði um stórkostlega gallað mál. Mál sem kom rangt hingað inn í þingið, hafði ekki fengið neinn viðunandi undirbúning, var rifið út úr þingnefnd án þess að brugðist væri við og talað við eðlilega umsagnaraðila, mál sem stjórnarliðar komu ekki einu sinni upp og ræddu við okkur um í 2. umræðu, mál sem hefur ekki verið varið af stjórnarliðum, stórkostlega gölluð lagasetning sem varað er við í hverri einustu umsögn sem barst þinginu. Forseti þings og hæstv. ríkisstjórn vill greiða atkvæði um þetta og láta þetta verða að lögum. Ég segi: Verði þeim að góðu, en mikil er skömm Alþingis Íslendinga í dag.