veiðigjald.
Frú forseti. Ég verð að lýsa því yfir að ég er sorgmæddur í dag, að við séum komin á þennan stað. Við höfum ekki náð að leiða þetta mál til lykta. Við erum sammála um það, held ég öll hér inni, að málið var ófullburða þegar það kom inn í þingið. Nefndin gerði ágætisbreytingar á frumvarpinu en ekki nægar og það sjáum við í öllum þeim umsögnum sem hafa borist. Mig langar til að tala hér sérstaklega til landsbyggðarþingmanna. Fólkið okkar, þar sem litlu og meðalstóru útgerðirnar eru, treystir á okkur þingmenn að standa vörð um þeirra hagsmuni. Ég get ekki farið heim og sagt að hér hafi allir þingmenn gætt hagsmuna þessara litlu og meðalstóru útgerða og fiskvinnslna, því miður. Það er synd vegna þess að við hefðum getað lagt meira á okkur og náð betri niðurstöðu heldur en kemur í ljós þegar greidd verða atkvæði á eftir.