veiðigjald.
Frú forseti. Þetta mál sem hér er um að ræða er gott mál. Það er einfalt mál og snýst um það að láta raunverðmæti vera andlag skattlagningar en ekki að verð í innri viðskiptum samþætti veiðar og vinnslu. Það er einfaldlega verið að láta raunvirði aflans ráða skattlagningu. Ég vil nota tækifærið sem formaður atvinnuveganefndar og þakka nefndarmönnum öllum fyrir góða vinnu í nefndinni. Ég vil einnig þakka hæstv. ráðherra fyrir góða vinnu, nefndarritara sérstaklega, vegna þess að þetta hefur verið átakasöm vinna og gefið á bátinn í vinnunni. Ég er alveg sannfærður um að við höfum hér gott frumvarp til að greiða atkvæði um og ég mun að sjálfsögðu styðja málið eins og þorri þjóðarinnar gerir.