veiðigjald.
Virðulegur forseti. Höfuðeinkenni okkar ágætu stjórnskipan hefur verið temprun valds. Þannig höfum við þrískiptingu ríkisvalds þar sem hver grein ríkisvaldsins getur ekki rúllað yfir aðra. Málfrelsi þingmanna er öðrum þræði til þess einmitt að tempra vald framkvæmdarvaldsins. Í þessu máli er mikilvægt að hafa í huga að málfrelsi í því var ekki eingöngu til þess að koma á framfæri sjónarmiðum þingmanna heldur til þess að kalla fram betri þinglega meðferð, kalla fram tölulegar upplýsingar um málið með gestakomum í nefndum. Við því hefur ekki verið orðið. Gott og vel. Nú liggur fyrir að málið fer aftur inn í hv. atvinnuveganefnd og það ber að þakka. Óskað var eftir því sérstaklega. Nú ríður á að sjá hvort málið geti fengið þá þinglegu meðferð sem það á skilið eftir 2. umræðu í hv. atvinnuveganefnd.