156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[12:47]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Hæstv. forsætisráðherra sagðist vera stolt af samráðherrum sínum. Var hæstv. forsætisráðherra líka stolt af ummælum gærdagsins? Var hún stolt af ummælum hæstv. ráðherra, Ingu Sæland? Þetta er fyrsta ríkisstjórnin sem nær ekki þinglokasamningum þannig að með valdi, í krafti stærðar, tekur hún málfrelsið af minni hlutanum. Gott að þetta er ríkisstjórn en ekki sterkari aðilinn í sambandi af því að þessi valdbeiting minnir bara á lítinn, lítinn karl.