veiðigjald.
Virðulegi forseti. Mig langar að lesa, með leyfi forseta, úr yfirlýsingu stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 7. júlí. Þar kemur fram:
„Samtök sjávarútvegssveitarfélaga ítreka afstöðu sína og hvatningu til Alþingis um að tekið sé tillit til þeirra athugasemda og þeirra áhyggna sem samtökin hafa komið á framfæri við atvinnuvegaráðherra, forsætisráðherra, fjármálaráðherra, atvinnuveganefnd og þingmenn. Samtökin hvetja þessa aðila til þess að hafa hagsmuni almennings í þessum sveitarfélögum til hliðsjónar þegar unnið er að breytingum á löggjöfinni.“
Kæru vinir, kæru alþingismenn. Ég stend með þeim.