veiðigjald.
Frú forseti. Við sem þekkjum þetta mál vel úr atvinnuveganefnd bendum á að tímalína þessa frumvarps er ekki góð ef við kynnum okkur hana. Þetta er illa unnið mál frá byrjun og það er búið að taka langan tíma að vinna í því í rúma þrjá mánuði frá því að það kom fyrst fram hjá hæstv. ráðherra. Atvinnuvegaráðuneytið hefur við vinnslu þessa máls viðurkennt að formleg ferli ráðuneytisins voru ekki nægilega góð og ætlar að endurskoða ferli varðandi lagasetningu. Það hefur m.a. komið fram í þessu máli. Nú fer þetta veiðigjaldafrumvarp til hv. atvinnuveganefndar og síðan til 3. umræðu og ég vona svo sannarlega að stjórnarliðar komi nú og taki þátt í þessari umræðu þannig að við fáum aðeins að heyra hver viðhorfin eru. Ræðum sjávarútvegsbyggðirnar. Ræðum áhrifin á sjávarútvegsbyggðirnar, förum í gegnum það sem hefur verið unnið. Það er mikilvægt að þetta mál sé unnið miklu betur heldur en það er í dag, þar sem það er komið. Og það er ánægjulegt að formaður atvinnuveganefndar hér í fundarstjórn talaði tvisvar um að þetta væri skattlagning, svo það sé á hreinu.