veiðigjald.
Virðulegi forseti. Hér greiðum við atkvæði um að þjóðin fái sanngjarna auðlindarentu af sameiginlegri auðlind sinni, sjávarauðlindinni. Við í atvinnuveganefnd höfum haft þetta mál til umfjöllunar og búið að ræða það mjög vel þar og hér í þingsal. Við höfum gert líka góðar breytingar á málinu sem snúa akkúrat að því að mæta þessum litlu og meðalstóru útgerðum. Við sem stöndum vörð um hagsmuni landsbyggðarinnar, og sérstaklega þessar litlu og meðalstóru útgerðir, höfum vissulega náð miklum árangri. Nú er verið að veita afslátt upp að 15 milljónum, 65% afslátt, og afslátt af næstu 55 milljónum, 45% afslátt. Svo þetta skiptir máli í þessu samhengi. Hér í þingsal hefur verið mikið rætt um að menn beri hag landsbyggðarinnar fyrir brjósti og litlu og meðalstóru fyrirtækjanna og það er gert í þessu frumvarpi núna og menn eiga ekki að misnota það þegar menn eru að gæta hagsmuna stórútgerðarinnar.