veiðigjald.
Virðulegur forseti. Mig langar aðeins við þetta tilefni að koma því á framfæri við þá sem kunna að vera hlýða á okkur hér hvers vegna við höfum, allur þessi hópur þingmanna, staðið hér dag eftir dag og endurómað áhyggjur sveitarfélaga og annarra af landsbyggðinni af þessu frumvarpi. Vissulega hafa orðið einhverjar breytingar en þær eru algerlega smávægilegar. Það er verið að gagnrýna það og koma því á framfæri að þetta er gallað frumvarp og það hefur ekki verið hlustað á þau sveitarfélög sem tugum talsins hafa komið fram með miklar áhyggjur, alls kyns fyrirtæki sem vinna í tengslum við sjávarútveginn. Mér hefur fundist það mjög lágkúruleg umræða og dapurt að þurfa að sitja undir því af hálfu stjórnarliða, þá sérstaklega í fjölmiðlum því að ekki hafa þeir nú mikið tekið þátt í umræðunum hér, að vera að gæta (Forseti hringir.) hagsmuna einhverra stórra tiltekinna örfárra útgerða. Ég hef tekið þátt í þessu til að gæta hagsmuna atvinnulífsins og þessarar ágætu atvinnugreinar sem gengur vel. Hvaða atvinnugrein verður það næst sem verður hoggið í?