veiðigjald.
Frú forseti. Um þessa atkvæðagreiðslu vil ég gjarnan segja að það er fagnaðarefni að þingmenn sitji hér í þessum sal og geti sagt skoðun sína með því að ýta á takkana. Það er þannig sem við leiðum til lykta deilur, stundum harðar deilur. Við erum oft ósammála um efnisatriði, jafnvel form líka. En leiðin sem við höfum valið okkur sem lýðræðisríki er að útkljá deilurnar með því að ýta hér á takka í atkvæðagreiðslu. Að menn líti á það sem einhvern sérstakan sorgardag finnst mér verulegt umhugsunarefni, að það sé sorgardagur þegar mál er útkljáð í atkvæðagreiðslu eftir á fjórða þúsund ræður og 160 klukkutíma af umræðum hér í þingsal. Eigum við ekki aðeins að átta okkur á því hvert hlutverk okkar er hér í þessum sal? Það er að útkljá mál með atkvæðagreiðslu. Já, við erum stundum ósammála. En svona er lýðræðið. Við skulum ekki gleyma því núna þegar við göngum til atkvæðagreiðslu.