156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[12:54]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér greiðum við atkvæði um skattahækkun á grunnatvinnuveg þjóðarinnar, skattahækkun. Þetta er ekkert annað en skattahækkun. Þetta er skattahækkun sem ég óttast mjög að hafi slæm áhrif á þennan atvinnuveg, sjávarbyggðirnar og þorpin í kringum landið. Þetta er mjög varhugavert skref en ég minni á það að ábyrgðin er meiri hlutans. Það verður vitnað til þess í sögunni hver áhrifin verða og því miður óttast ég mjög þau áhrif sem af þessu frumvarpi verða.