156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[12:55]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er algjörlega greinilegt að hv. meiri hluti og hæstv. ríkisstjórn gera sér enga grein fyrir því hvað er búið að gera í þinginu miðað við þau hlátrasköll og fagnaðarlæti sem glumdu um gangana úr þingflokksherbergi Samfylkingarinnar. Hæstv. forsætisráðherra kemur hér upp og biður okkur um að bera virðingu fyrir hæstv. ráðherrum sem tala um valdarán, tala um að fara með fólk undir vegg og skjóta það og hafa svo tekið að sér að vera fulltrúar Íslenska dansflokksins hér á þingi. Við erum búin að standa hér og tala fyrir því að verja hagsmuni byggðanna í landinu. Það hefur ekkert verið hlustað á það og ekkert tekið til greina. Ég ætla að fá að vitna í umsögn Grundarfjarðarbæjar frá 5. júlí sl.:

„Það eru ekki góð eða fagleg vinnubrögð að hafa svo ríka samfélagslega hagsmuni í flimtingum.“