156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[12:56]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við greiðum hérna nauðbeygð atkvæði um frumvarp sem hefur fengið gríðarlega langa umræðu í þinginu en hún hefur verið nánast einhliða frá minni hlutanum, nánast einhliða. Ég er forviða á að hér hafi ekki farið fram betri umræða í ljósi þeirra umsagna sem hafa komið fyrir nefndina frá 26 sveitarfélögum. Hér hafa menn haft uppi stór orð, talað um það að hér sé orrustan um Ísland í gangi. Stend ég þá hér með bæjarfulltrúum Samfylkingar, Viðreisnar og annarra á landsbyggðinni í einhvers konar orrustu gegn núverandi stjórnvöldum? Það bara getur ekki staðist, frú forseti. Framsókn hefur lagt fram málamiðlunartillögu í málinu. Það var ekki fullreynt að ná sáttum og hér stöndum við í dag með 71. gr. Ég hef verulegar áhyggjur af því hvert Alþingi Íslands stefnir. Hver ætlar að taka ákvörðun um það hvenær henni verður beitt næst og eftir hversu langan tíma og í hvaða málum?