156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[12:59]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Mér finnst rétt að það komi hér fram í umræðunni um hækkun veiðigjalds að ég held að það sé stór hluti þingmanna hér inni sem hefur talað um það í sínum ræðum að það sé ekkert óhugsandi að hækka veiðigjöld. Þetta snýst ekki um það. Þetta snýst um hvernig við gerum það, hvernig við útfærum það. Það getur ekki verið, ég neita að trúa því, að það séu hagsmunir ríkisstjórnarinnar að útfærslan verði með þeim hætti að lítil og meðalstór fyrirtæki, aðallega á landsbyggðinni, laskist svo að starfsemi þeirra verði verulega raskað eða jafnvel alveg hætt. Þetta eru áhyggjur sveitarfélaganna. Þetta eru áhyggjur Byggðastofnunar. Þetta eru áhyggjur 80 af 86 umsagnaraðilum. Þetta, virðulegur forseti, eru áhyggjur okkar.