156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:00]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég stend í dag tiltölulega ánægður, ég er ánægður yfir því að ríkisstjórnin sem hér situr hafi loksins sýnt sitt rétta andlit. Ég er ánægður yfir því að sjá það að ríkisstjórnin er svo forystulaus að hún er reiðubúin til þess að beita ákvæði, sem var síðast beitt við inngöngu Íslands í NATO, út af skattahækkun. Það er ótrúlegur skortur á forystu og enn meiri skortur á samskiptahæfni, því miður. Ekki gott veganesti. Það er heldur ekki gott veganesti þegar hæstv. forsætisráðherra þjóðarinnar heldur því fram og talar um að þeir sem hafa staðið hér nokkuð lengi að reyna að koma í veg fyrir að þetta vonda mál, illa unna mál, verði að lögum, séu hér að verja hagsmuni fjögurra til fimm fjölskyldna í landinu. Hvers konar málflutningur (Forseti hringir.) er þetta? Er þetta það sem hæstv. forsætisráðherra ætlar að segja við þá sem hún hittir frá sveitarfélögunum sem verða fyrir barðinu á þessum lögum, að þetta sé nú bara allt í lagi (Forseti hringir.) af því að það séu bara fjórar til fimm fjölskyldur sem lenda í þessu? Þetta er óskiljanlegt, frú forseti.