156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:04]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Nú er „ég á þetta, ég má þetta“-ríkisstjórnin að keyra hér í gegn enn eina skattahækkunina. Þessi hæstv. ríkisstjórn mun hækka skatta, ekki bara á þennan atvinnuveg heldur almenning, ferðaþjónustuna, orkuna og þeir hafa lýðræðislegt umboð til þess. En það er ömurlegt að hafa orðið vitni að því að forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa farið fram og haldið því fram að það að hækka skatta á atvinnugrein um 8.000 milljónir á ári muni ekki hafa nein áhrif á samkeppnishæfnina. Það hefur engin áhrif á byggðirnar. Það hefur engin áhrif á nýsköpun. Með því að taka 8.000 milljónir á ári frá fyrirtækjum, mest frá landsbyggðinni til Reykjavíkur, þá hefur það engin áhrif á þau. Þetta eru auðvitað hrein og klár ósannindi eins og allt í kringum þetta mál. Og það er ömurlegt að vera kominn hingað í dag á Alþingi Íslendinga og ánægjulegt (Forseti hringir.) að ráðherrabekkurinn hlær og flissar. En það er enginn hlátur í huga þess sem áttar sig á því (Forseti hringir.) hvaða afleiðingar þessi vinnubrögð hafa fyrir Alþingi Íslendinga.